
Keppnisnefnd hefur gefið frá sér gott yfirlitsskjal með öllum nýjum breytingum fyrir 2015. Allir dómarar eiga að þekkja þetta eins og handabakið á sér.
Endilega skoðið þetta hér:
![]() Dómarar athugið Keppnisnefnd hefur gefið frá sér gott yfirlitsskjal með öllum nýjum breytingum fyrir 2015. Allir dómarar eiga að þekkja þetta eins og handabakið á sér. Endilega skoðið þetta hér:
0 Comments
Stjórn HÍDÍ vill þakka öllum þeim sem komu á endurmenntun í ár þó sérstaklega Gunnari Reynissyni fyrir frábæran fyrirlestur um hreyfingarfræði.
Nokkrar fyrirspurnir bárust frá þátttakendum og hér kemur svar við þeim. 1. Hvað þarf mikið blóð til að dæma keppanda úr keppni? Svar: Keppnisnefnd LH er að vinna í greinagerð um nánari útskýringar. 2. Lýsingin „Greinilegt svif“ 3,5-5 í dálkinum taktur/jafnvægi í skeið inná hringvelli: Hægt er að túlka þetta þannig að ef vottar fyrir fjórtakti þá má ekki gefa hærra en 3. Svar: Greinilegt svif þýðir einfaldlega að til þess að fá 3,5 eða hærra má dómarinn ekki lengur vera í vafa um að hesturinn sé á svifi. Stundum getur verið vafi um hvort það hafi verið svif til staðar (og þá í raun hvort þetta hafi verið skeið eða ekki).Ef svo mikill vafi leikur á því hvort hesturinn hafi verið á svifi getum við ekki gefið hærra en 3 og ef við erum hins vegar viss um að það hafi ekki verið nokkurt svif þá er auðvitað bara gefið 0. Það er ekki farið fram á mjög gott svif fyrr en í 7 eða hærra. 3. Þýddur bannlisti fyrir 2015 – er heimilt að nota skáreim á reiðmúla með stöngum? Svar: Bannlistinn sem er birtur á heimasíðu HÍDÍ er FIPO bannlistinn, Skáreimin er á honum og verður bönnuð á WR mótum en annars er í lagi að nota hana hér á Íslandi. 4. Er til gott yfirlit yfir bannaðan beislisbúnað Svar: Alþjóða dómafélagið sendi frá sér fína mynd með nokkrum sýnishornum yfir bönnuðu mél . Sjá hér fyrir neðan. Glærur frá Endurmenntun 2015 Opnun Halldórs Formanns HÍDÍ Fyrirlestur Gunnars Reynissonar Fyrirlestur Halldórs um nýjar reglur og upprifjun á leiðara Myndbönd ![]() Vert er að minna á að sækja þarf um dómara með minnst 4 vikna fyrirvara áður en mót hefst. Hægt er að gera það hér hægrameginn |
Umsókn um íþróttadómaraMótaskrá LH fyrir 2020Lög og reglur
|