Nú er hægt að fá allar nýjar fréttir sem birtast á heimasíðunni beint í tölvupóst með því að skrá sig á póstlista hægra megin á síðunni (neðarlega).
1 Comment
![]() Dómarar athugið - Þann 1. apríl nk. tekur í gildi nýr leiðari fyrir dómara í hestaíþróttum. Mikilvægt er að kynna sér þær breytingar sem hafa orðið og mun HÍDÍ á næstunni auglýsa fundi fyrir dómara þar sem farið verður yfir helstu atriði leiðarans og nokkrir hestar dæmdir. ![]() Dear International Sport Judges-- It is time, once again, to ask if any of you are interested in standing for election to the Sport Judges Committee. Please let me know if you are interested by April 4. I will come back on April 5 with voting instructions. Thank you. --Doug Smith doug@feif.org ----------------------------------------------------------------------------------- Nú þegar er Halldór G. Victorsson í nefndinni og þætti okkur mikill styrkur að fá annan Íslending í nefndina - við hvetjum því íslensku alþjóðadómarana að gefa kost á sér í næstu kostningu til Doug sem fyrst !!! ![]() Sportnefnd FEIF fundaði í Reykjavík 7.-9. febrúar s.l. Breyting varð á mönnun nefndarinnar. Kjósa þurfti um 2 nýja nefndarmenn þar sem þeirra kosningartími var útrunnin en það voru þeir Sigurður Sæmundsson og Vicky Eggertsson. Vicky bauð sig fram áfram og var endurkjörinn en Sigurður ákvað að gefa ekki kost á sér áfram eftir 25 ára veru í nefndinni. Sæti Sigurður kom í hlut Huldu Gústafsdóttur og fögnum við Íslendingar því. Til hamingju Hulda og gangi þér vel. Nálgast má fundargerðina hér ![]() Þrjá dómara vantar í dómstörf á Youth Cup á Hólum í sumar. Tíminn sem um ræðir er frá hádegi 17.júlí, allan 18. og 19.júlí. Stefnt á að þessu sé lokið síðdegis þann 19. Frítt fæði og húsnæði í boði ásamt því að vera í félagsskap frábærra unglinga sem elska íslenska hesta! Ekki er greitt fyrir dómstörf (samskonar sístem og á HM) en að sjálfsögðu verður greitt fyrir ferðakostnað. Vonumst til að fá jákvæðar undirtektir, trúum ekki öðru en alþjóðadómarar taki vel í að vinna fyrir æskulýðinn. Helga B. Helgadóttir Formaður Æskulýðsnefndar LH og mótstjóri FYCUP 2014. |
Umsókn um íþróttadómaraMótaskrá LH fyrir 2020Lög og reglur
|