Hestaíþróttadómarafélagið
HÍDÍ alltaf online :)
  • Fréttir
  • HIDI
    • DÓMARAR 2021
    • Keppnisgreinar >
      • Tölt
      • Slaktaumatölt
      • Fjórgangur
      • Fimmgangur
      • Skeið
      • Mótshaldarar
    • Leiðarinn
    • Reglur félagsins
    • Skjöl >
      • Öll Skjöl
      • Hóflengd
      • Gæðingaskeið
      • Aðalfundir - gögn
    • FEIF >
      • FEIF bannaður búnaður
      • FEIF íþróttakeppni
    • Stjórn >
      • HÍDÍ LOGIN
    • Annað >
      • Lógó
      • Dagatal
      • Tenglar
  • Dómsstörf 2021
  • Dómaraúthlutun 2021
  • Endurmenntun 2021

HÍDÍ: Mönnun móta sumarsins !!!

15/5/2012

0 Comments

 
Búið er að úthluta á mót sumarsins  !!!

Undantekning eru íslandsmót fullorðinna og yngri flokkanna og töltið á landsmótinu.  HÍDÍ hefur sent tillögu til dómaranefndar LH og beðið er eftir athugasemdum/samþykki.   Málið verður afgreitt sem allra fyrst og verður niðurstaðan birt um leið og það hefur fengið staðfest.


Orðsending til þeirra dómara sem hafa fengið úthlutuð mót:

Vinsamlegast staðfestið í "Comments" við úthlutun sem allra fyrst !



0 Comments

Tilkynning til mótshaldara, knapa, aðstandenda knapa og dómara !!

14/5/2012

0 Comments

 
Um liðna helgi kom upp atvik á WR móti að mótshaldarar fengu ábendingu um að knapa, sem var að keppa, væri stjórnað af þjálfara sem staðsettur var utan vallar með góða yfirsýn yfir völlinn. Nútímatækni gerir það mögulegt að knapinn var í ,,Bluetooth” sambandi við þjálfarann. Hann var með lítinn hnapp í eyranu sem sést ekki vegna hárs eða óla á hjálminum. Þegar yfirdómari og mótshaldari ræddu við þjálfara knapans hélt hann að þetta væri löglegt þar sem þetta væri mikið notað í kynbótasýningum, gæðingakeppnum og væri algengt í íþróttakeppnum. En eins og vonandi allir vita þá er þetta stranglega bannað í keppni samkvæmt  Lög og reglum LH, sjá eftirfarandi:
8.2.1
Knapi skal sjálfur undirbúa og ríða hesti sínum fyrir keppni. Enginn annar en hestur og knapi hans, keppnispar má vera í upphitunarhring á meðan á keppni stendur. Undanskilið þessari reglu er aðstoð við að hagræða fötum og öðrum útbúnaði áður en riðið er inn á völlinn. Knapinn má ekki fá neins konar utanaðkomandi hjálp á meðan á keppni stendur.


Eins viljum við benda á eftirfarandi greinar í Lög og reglum LH undir kaflanum Siðareglur:

2.3.1.  Ábyrgð keppenda, leiðbeinenda og þjálfara
Keppendur sjálfir bera mjög mikla ábyrgð við að kynna og standa vörð um sanngjarna keppni í sinni íþrótt. Þrátt fyrir ábyrgð annarra þá er er það keppandinn sem fyrst og síðast getur á beinan hátt haft mest áhrif á það hvort keppni er sanngjörn eður ei með því að hafa skilning á þeim reglum sem varða keppni og að fara af trúverðuleika eftir þeim, hvort sem einhver sér til eður ei.

Þekktir keppendur verða að átta sig á hversu mikil áhrif þeirra fordæmi getur haft og viðurkenna ábyrgð sína sem fyrirmyndir. Þetta á við um gjörðir þeirra á hestinum sem og þegar hann er ekki á hestbaki, á upphitunarsvæði sem og á keppnisvellinum.

Leiðbeinendur og þjálfarar geta einnig haft áhrif á ímynd sanngjarnrar keppni og sett gott fordæmi með því að draga úr hugsanlegum virðingarskorti skjólstæðinga sinna fyrir reglunum og gert athugasemdir við hugsanlegar óviðeigandi gjörðir skjólstæðinga sinna. Leiðbeinendur hafa jafnmikil áhrif með fordæmi sínu og þeir hafa með tilsögn sinni.

2.3.3 Ábyrgð dómara, starfsmanna, dýralækna og allra annarra embættis- manna
Starfsmenn hafa mikið vald sem um leið leggur á herðar þeirra mikla ábyrgð. Hver sem einstök störf þeirra eru, þá eru þau ekki einungis metin eftir tæknilegri hæfni eða nákvæmri þekkingu á lögum og reglum, heldur einnig eftir dómgreind, sjálfsstjórn, sveigjanleika, sanngirni og heiðarleika. Að auki skulu allir starfsmenn gæta fyllsta hlutleysis og vera á verði gagnvart hlutdrægni í hvaða mynd sem vera skal. Í öllum vafatilfellum er ávallt skynsamlegra fyrir starfsmann að leita upplýsinga hjá þeim sem hugsanlega eiga í hlut heldur en að fylgja eftir hugsanlegum en órökstuddum grun.

2.3.5. Ábyrgð áhorfenda
Starfsmenn hafa mikið vald sem um leið leggur á herðar þeirra mikla ábyrgð. Hver sem einstök störf þeirra eru, þá eru þau ekki einungis metin eftir tæknilegri hæfni eða nákvæmri þekkingu á lögum og reglum, heldur einnig eftir dómgreind, sjálfsstjórn, sveigjanleika, sanngirni og heiðarleika. Að auki skulu allir starfsmenn gæta fyllsta hlutleysis og vera á verði gagnvart hlutdrægni í hvaða mynd sem vera skal. Í öllum vafatilfellum er ávallt skynsamlegra fyrir starfsmann að leita upplýsinga hjá þeim sem hugsanlega eiga í hlut heldur en að fylgja eftir hugsanlegum en órökstuddum grun.


2.7.4 Dæmt úr keppni og agaviðmið
2.7.4.3 Viðurlög

Eftirtalin viðurlög má nota ein sér eða einhver saman, séu reglur FIPO brotnar:

  • Útilokun frá keppnisgrein
  • Viðvörun sem ekki er gerð opinber
  • Viðvörun sem gerð er opinber
  • Útilokun frá móti
  • Keppnisbann
  • Útilokun frá móti og keppnisbanni skal ávallt beita ásamt opinberri viðvörun.




Virðingafyllst,

Stjórn og fræðslunefnd HÍDÍ

0 Comments

Keppnisgreinar FIPO 2012

2/5/2012

0 Comments

 
Við höfum tekið saman keppnisgreinar FIPO 2012 undir tenglinum Annað -- Keppnisgreinar FIPO 2012

Þar má finna lýsingu á fjölda knapa sem keppir í einu, hvernig forkeppni er riðin í hverri grein fyrir sig og eins úrslitin.

Viljum biðja mótshaldara að hafa þessi atriði á kristaltæru svo ekki komi upp vandræði þegar þeir halda sín mót.




0 Comments

    Umsókn um íþróttadómara

    Mótaskrá LH  fyrir 2020

    Picture
    Leiðari fyrir dómara í hestaíþróttum

    Lög og reglur
    ​

    Bannlisti 2017

    Eldri fréttir

    January 2021
    November 2020
    October 2020
    July 2020
    January 2020
    January 2019
    December 2018
    May 2018
    February 2018
    January 2018
    December 2017
    November 2017
    October 2017
    September 2017
    August 2017
    May 2017
    April 2017
    March 2017
    February 2017
    January 2017
    November 2016
    October 2016
    September 2016
    March 2016
    February 2016
    January 2016
    December 2015
    October 2015
    April 2015
    March 2015
    February 2015
    January 2015
    December 2014
    November 2014
    July 2014
    May 2014
    April 2014
    March 2014
    January 2014
    December 2013
    November 2013
    October 2013
    August 2013
    July 2013
    June 2013
    May 2013
    April 2013
    March 2013
    February 2013
    January 2013
    November 2012
    October 2012
    September 2012
    August 2012
    June 2012
    May 2012
    April 2012
    March 2012
    February 2012
    January 2012
    September 2011

    Picture
    Picture
    Picture
    Picture

    RSS Feed

    Áskrift af fréttum

    Skráðu inn tölvupóstfang:

Hestaíþróttadómarafélag Íslands

hididomarar@gmail.com
Kennitala: 550212-0640

Áskrift af fréttum

Skráðu inn tölvupóstfang: