Nokkrar fyrirspurnir bárust frá þátttakendum og hér kemur svar við þeim.
1. Hvað þarf mikið blóð til að dæma keppanda úr keppni?
Svar: Keppnisnefnd LH er að vinna í greinagerð um nánari útskýringar.
2. Lýsingin „Greinilegt svif“ 3,5-5 í dálkinum taktur/jafnvægi í skeið inná hringvelli: Hægt er að túlka þetta þannig að ef vottar fyrir fjórtakti þá má ekki gefa hærra en 3.
Svar: Greinilegt svif þýðir einfaldlega að til þess að fá 3,5 eða hærra má dómarinn ekki lengur vera í vafa um að hesturinn sé á svifi. Stundum getur verið vafi um hvort það hafi verið svif til staðar (og þá í raun hvort þetta hafi verið skeið eða ekki).Ef svo mikill vafi leikur á því hvort hesturinn hafi verið á svifi getum við ekki gefið hærra en 3 og ef við erum hins vegar viss um að það hafi ekki verið nokkurt svif þá er auðvitað bara gefið 0. Það er ekki farið fram á mjög gott svif fyrr en í 7 eða hærra.
3. Þýddur bannlisti fyrir 2015 – er heimilt að nota skáreim á reiðmúla með stöngum?
Svar: Bannlistinn sem er birtur á heimasíðu HÍDÍ er FIPO bannlistinn, Skáreimin er á honum og verður bönnuð á WR mótum en annars er í lagi að nota hana hér á Íslandi.
4. Er til gott yfirlit yfir bannaðan beislisbúnað
Svar: Alþjóða dómafélagið sendi frá sér fína mynd með nokkrum sýnishornum yfir bönnuðu mél . Sjá hér fyrir neðan.
Glærur frá Endurmenntun 2015
Opnun Halldórs Formanns HÍDÍ
Fyrirlestur Gunnars Reynissonar
Fyrirlestur Halldórs um nýjar reglur og upprifjun á leiðara
Myndbönd