Einnig er hægt að sækja pdf útgáfu af reglum sem hentar vel á spjaldtölvur og síma á heimasíðu LH. Hér
Keppnisnefnd sendi út bréf um daginn og minnir á mikilvægi þess að dómarar séu faglegir í sinni vinnu og hvetjum við allar að rifja upp reglurnar fyrir núverandi keppnistímabil.
Úr bréfi keppnisnefndar:
Öll samskipti dómara við aðra á mótsvæðinu verða að vera fagleg og óaðfinnanleg, hafin yfir alla gagnrýni, hvort sem er við ritara, keppendur, aðstandendur keppenda, áhorfendur eða starfsmenn móta sem og samdómendur sína. Yfirdómari er samkvæmt reglum talsmaður hópsins.
Dómarar bera ábyrgð á því að mótin fari fram eftir lögum og reglugerðum þar um, og af gefnu tilefni eiga þeir ekki að víkja frá reglum á neinn hátt, þeir verða að skoða aðstæður. Aðstaða dómara og keppenda á að vera eins góð og kostur er, að fóta- og búnaðarskoðun sé rétt framkvæmd, að þeir sem sjá um þessa þætti sem og örmerkjaaflestur séu með reglur og þekkingu til starfans, og að skýrslum um mótið sé skilað að móti loknu.
Þessi ábending til ykkar er liður í að efla gæði mótahalds og virðingu allra sem að því koma og efla samstarf félaganna eins og kostur er varðandi þessa þætti. Það er íþróttinni nauðsyn að efla virðingu fyrir dómurum og keppnishaldinu öllu, tryggja að allir sem taka þessi mikilvægu störf að sér séu til þess hæfir og séu með allt sitt á hreinu hvað reglur varðar og þar með íþróttinni okkar til sóma.