Fimmtudaginn 17 nóvember hélt fræðslunefnd HIDI fyrirlestur með Dr. Víkingi Gunnarssyni, um hreyfingaflæði og mat á gangtegundum.
Víkingur er lektor við Háskólann á Hólum og kennir meðal annars hreyfingafræði hrossa. Hann er hestamönnum vel kunnugur, var um árabil deildarstjóri hestafræðideildar skólans og er einnig einn reynslumesti kynbótadómari landsins. Fyrirlesturinn var haldin í Guðmundarstofu og á Teams, yfir 40 dómarar fylgdust með og var mikil ánægja með efnistökin og framsetningu á efninu. Margar rannsóknir eru í gangi við Hólaskóla og einnig í samstarfi við erlenda Háskóla. Góð umræða fór fram um hvernig hægt er að mæla hina ýsmu eiginleika hestsins með háþróuðum tæknibúnaði og í framhaldi hvernig er hægt að bæta dómsstörf með tilkomu tækninnar. Mjög fræðandi fundur, bestur þakkir til Víkings og til þeirra dómara sem fylgdust með.